5‏/4‏/2013

Sakar Aalstein um a sna t r fyrir sr

Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, sakar Aðalstein Baldursson, formann verkalýðsfélagsins Framsýnar, um að snúa út fyrir sér í umræðu um innflutning á fuglakjöti. Aðspurður sagði Andrés í fréttum RÚV í gær að heimila ætti frjálsan innflutning á kjúklingum. Framleiðslan hér á landi byggði meðal annars á innfluttu vinnuafli.

Hann segir að Aðalsteinn kjósi að misskilja sig og taka úr samhengi orð sín í fréttinni. Í þeim hafi ekkert vanþakklæti falist í garð þess innflutta vinnuafls sem hingað komi til að vinna. Eins og Aðalsteinn bendi réttilega á reiði verslunin sig m.a. á starfskrafta þess starfsfólks.

„Það sem ég var að benda á, er að það er ekkert sérstakt við hvíta kjötið, svínakjöt og kjúklinga, sem framleitt er fyrir íslenskan markað, að stóru leyti af tveimur stórum iðnfyrirtækjum. Þarna er um að ræða nokkra tugi starfa yankee amazon online coupons sem, eins og Aðalsteinn bendir á, er erfitt að fá Íslendinga til að sinna. Fóðrið sem dýrin fá er hið sama og í Danmörku, Hollandi eða Frakklandi. Það eru því engin skynsamleg rök fyrir því að íslenskir neytendur eigi að greiða mun hærra verð fyrir þessar vörur," segir Andrés í yfirlýsingu.

Andrés segir að þetta sé einföld spurning um almannahagsmuni á kostnað sérhagsmuna örfárra fyrirtækja. Eins og staðan sé í dag verði með öllum ráðum að auka kaupmátt íslenskra heimila og þegar neysla á hvítu kjöti sé um helmingur þess kjöts sem heimilin neyti þá sé ekki hægt að horfa fram á þá miklu hagsmuni - þá gríðarlegu kjarabót sem verið sé að fórna fyrir sérhagsmuni fárra.

ليست هناك تعليقات:

إرسال تعليق